Hérna er allt ágætt að frétta, það sem hefur drifið á daganna er að Spori gamli lést. Auðbjörg mákona var svo óheppin að keyra yfir hann. Snæja kindin min lét núna í gær og fundust 2 fóstur, ég held því fram að það sé eitthvað að hjá henni því hún var með úldinfóstur í fyrravor en eitt lambið lifði. En kannksi er það bara vitleysa í mér. Ég er búin að fá leyfi að taka inn einn gamlann jálk í april og ég hlakka svo til. Ég er að vonast til að ég geti lært af honum og kennt honum líka. Ég er búin að vera að styrkja fjölskyldutengslin og er búin að vera drukkin næstum allar helgar með Ingu Jónu frænku og er búinn að kynnast frábæru fólki og þar á meðal eru íris og Gyða. Vá hvað við erum búnar að bralla saman. En síðasta djamm endaði frekar illa. Eg hitti ungann herramann sem var auðvitað Hofsósingur og við tókum snúning,nema hvað ég kolféll fyrir honum í fillstu orðsins merkingu. Hnéskelin fór úr og í lið og hnéð varð fjórfallt. Ég var frá vinnu en það er orðið gott núna, tæmpum 2 vikum seinna. Ég hef ekkert farið að skemmta mér síðan en það verður prufukeyrsla næstu helgi. ég var að tala við herbergisfélaga minn frá Dk og hún ætlar að koma að heimsækja mig í sumar, vá hvað ég hlakka til. það verður stuð!!! Jói og Auðbjörg eru búin að skíra litlu dömuna sína og heitir hún Laufey Cara. Laufey er drumanafn en Cara þýðir andlit á spænsku og er þýðir andlit. þannig merkingin í nafninu er andlit Laufeyjar, þvi stelpuskottið er annsi lík Laufeyju ömmu.
Kristján bró er á fullu að æfa fyrir Fitness á sem verður á Akureyri um páskanna. Ég stefni á að fara austur og hvetja kappann.
Það gengur allt sinn vana gang i vinnunni, sníta, skeina, púsla og lego - hvað þarf maður meira og ekki gleyma perla :)
Karlamál; ég er jafn kynköld og veðráttan og það eru hlýindi í veðurkortinu og vonum að það sé líka hjá mér ;)
jæja, já ég er sem sagt byrjuð að vinna á leikskólanum á Hólum (eins og í fyrra) og það er bara gott að vera komin aftur. Jói og Auðbjörg eignuðust stelpu 12. jan og var hún tekin með keisara. það gekk allt vel og Auðbjörg kom heim af sjúkrahúsinu í gær en þau eru fyrir sunnan ennþá. Mamma gamal átti afmæli í gær.. Annars hefur lífið verið mjög rólegt. ég hef djammað aðeins og ég verð að segja að besta djammið var um síðustu helgi. Mér tókst að fylla Kristján bróður og við fórum á barinn. þar voru ekki margir en vá hvað það var gaman. Kristján hefur ekki drukkið í 2 ár og því enn meira fjör ha ha ha ! annars same old shit diffrent day
jæja þá er maður kominn heim í sveitinna. Ég lennit 18.des og eyddi nokkrum dögum í menningunni og kom heim á þorláksmessu. Það var nú ótrúlega gott að koma heim og að borða almennilegan mat! úff! ég þakka fyrir jólakortin og gjafirnar. ég ákv að skirfa ekki jólakort í ár en þau verða þeim mun flottar á næsta ári :) En það er tjútt í kvöld og vá hvað ég hlakka til! þó það sé Geirmundur að spila, það gerist ekki meira skagfiskara en það bíst ég við.. bestu jólakveðjur úr Ennibýlinu
það komu ansi margir á sýninguna um helgina og það var rosa gaman. Ólí bróðir Guðnýjar kom í heimsókn og skoði sig um hérna. Svo fórum við aðeins á rúntinn og fundum þessa risa verslunarmiðstöð sem var mjög auðvelt að týnast í. Je minn eini. En fólkið er farið að týna tölunni hérna í skólanum. í gær fóru 5 og þeim fer fækkandi. Ég er að verða búin að pakka niður og þvílíkt dót herre gud! En mikið hlakka ég til að komast heim. Ég fer til Köben á miðvikudaginn og er stefnan tekin á að hitta Röngu mína og svo gisti ég hjá Dorthe. Mig langar að skoða jólatívolíð ... sjá jólaljósin! úhú! svo er það klakinn á fimmtudaginn! Annars er svo sem ekkert nýtt. 3 dagar i klakann
Við fórum til Vejle að syngja þarna á föstudaginn og vá maður. við vorum upp á sviðí í klukkutíma eða meira og sungum hvorki meira né minna en 23 lög!! takk fyrir takk!!! Jédúdda mína sko. fæturnir varu farnir að skálfa og manni var farið að svima.. En þetta var samt gaman en ef ég hefði vitað það að þetta ætti að vera í klukkutíma þá hefði ég ekki farið. Við kíktum aðeins út á lífið og vorum komin heim um 1 leytið. Laugardagurinn var mjög venjulegur, föndruðum stjórnur og svona skemmtilegt.. svo var party um kvöldið og það var ágætt sko. Við erum búin að vera undirbúa lokasýninguna og í dag var öllu hent út úr málingarsalnum, hann málaður, plastveggir settir upp og náðum í fullt af trékössum. Ég er bara orkulaus núna. Borðtenniskeppnin var blásin af (örugglega komist að því hversu rosa hæfileika ég hef.. hemmm) en skítt með það. Ég held að það ætli um 20 krakkar að halda áfram eftir áramót og ég verð að segja það að mig langar pínu að vera áfram en samt ekki .. Ég komst að því að eignlega ekkert af málvekunum mínum komast fyrír í töskunni minni þannig ég þarf þriðju hendinda svo ég geti dröslað öllu heim. dear lord! en það verður gott að komast heim í snjóinn og fá rokið og skítaveðrið og forstið... ahh en jæja nóg um þetta Já meðan ég man, ég sá alveg algjöra snilld á netinu um daginn, haldiði ekki að Nonni og Manni séu komnir út á dvd!! þvílíks snilld´, nú get ég hent gömlu vhs spólunum sem eru sko löngu orðnar slitnar! snilld! nú bíð ég bara eftir að Heilsubælið komi út og þá er allt eins og það á að vera! jæja nú kveð ég að sinni.. 8 dagar í heimför
Jæja þá er nú lokaverkefnið alveg að verða búið. ég á bara eftir að fínisera það og þá er það klappað og klárt. Niðurstaðn með hestana var sú að ég gerði smærri mynd af sama landslagi og setti hestana inn á þar. Gríðalega flott.. Á morgun er ég að fara að syngja (jamm þið lásið rétt - syngja) með skólanum á söngmaraþoni í Vejle. það er ekki laust við að það sé kominn pínu spenningur í mann... Annars er skít kalt í húsunum hérna, þeir vita ekki hvað kinding er þessir kjánar. Krakkarnir eru alveg að fara á taugum hérna út af draugagangi. En við hverju býst fólk þegar það býr í 400 ára gömlum kastala? Ég hef nú ekki verið vör við mikinn atgang sem er bara ágætt sko. Hérna er ekki vitund jólalegt og ég er engan veginn komin í jólaskap. Ég nenni ekki einu sinni að hlusta á jólalög.. Það er nú ekki venjan Jæja látum þessa línur duga i bili p.s. Sigga samlokan var bara fín sko...
Ég er búin að setja Kolbeinsdalinn á bið. Ég get ekki ákv mig hvort ég eigi að setja hesta inn á myndina eða ekki... djöfull! En ég er byrjuð að mála Tindastólinn og verð að vinna i þeirri mynd alla þessa viku. Ég náði að gera mig að fífli um daginn. Ég var stödd í Vejle og við (Anton, Diana og Kirstine) ákváðum að fá okkur að borða. ég ákvað að nota tækifærðið og æfa mig að pannta á dönsku. Það vildi nú ekki betra til að ég panntaði mér kettlingasamloku en ekki kjúklingasamloku... framburðurinn klikkaði aðeins... en stelpan hló bara og leiðrétti mig .. við vorum að föndra í dag.. við vorum að gera flétta hjartkörfur eins og maður gerði i gamla daga. Það sátu allir voða samviskusamlega og föndruðu allskonar útgáfur.. Annars tíðindarlítil helgi..
tíminn gjörsamlega flýgur núna. Það eru allt í einu bara 21 dagur eftir af skólanum og mér finnst ég eiga eftir að gera helling. Ég er nú sem betur fer vel á veg komin með fyrri myndina mína. Eg er búin að vera svolítið í kalda glerinu þessa dagana og hef ekkert verið að æfa mig í heita glerinu. Ég fékk óvnæta gjöf í gærmorgun og það var svo gaman. Tveir strákar tóku sig til og keyptu leikfanga hesta og máluðu þá og gáfu mér. Þeir eru voða sætir. Þeir heita Bony og Pink. Voða sætir ! En annars er bara vinna vinna vinna. Bakið er reyndar ekki upp á sitt besta en maður bara bítur á jaxlinn og harka það af sér. jæja see ya!!
ég ákv að breyta fluginu mínu og ég kem til landsins 18.des. Það kostaði "aðeins" 21 þús að breyta fluginu en það er ódrýrara en að borg hótelgistingu og uppihald. ég gáði hvað kostaði að kaupa nýjan flugmiða og það kostaði "aðeins" 35 þús sá ódýrasti en sá dýrasti sem ég fann var á um 90 þús! og þetta var hjá báðum flugfélugunum. Þannig er það! ég er búin að tala við stelpu sem heitir Dorte og er með mér í skólanum, ég má kúra hjá henni þessa einu nótt og svo skilst mér að það sé mjög auðvelt frá henni og á flugvöllinn Hún býr einhversstaðar rétt hjá lestastöðinni.. ég er að vinna á fullu í lokaverkefninu og ég held að það gæti orðið aðeins meira snúið en ég reiknaði með en við látum á það reyna. En nú get ég hreint ekki beðið eftir því að komast heim 26 dagar - bara 26!!!
Jæja það er komið upp úr kafinu að Elín vinkona kemur ekki út til mín. Ég skil hana vel, hún er atvinnulaus og svo þarf hún að fara með Viktor til háls, nef og eyrnalæknis. En það hefði verið svo gaman að hitta hana og eyða nokkrum dögum með henni í Köben. Linda Rós var að spá í að koma út og ég held að hún sé hætt við. Hún á gjafabréf með Icelandair sem dugar út en bara flugmiðinn heim með icelandexpress kostar um 50þús!! bara heim!! þannig ég reikna ekki með að hún komi heldur! Ég veit ekki hvað ég á af mér að gera þegar skólinn er búinn. ég hef einhverja fjóra daga þangað til ég flýg heim og hvað á ég að gera?? Ég nenni ekki að hanga ein í Köben, ég þekki fólk í Köben en ég vil ekki vera að hengja mig á þau. Dem! Ég er búin að negla niður hvernig lokaverkefnið mitt verður. ég hlakka til að fara að byrja á því bestu kveðjur úr rokinu og rigningunni